Mannaþefur í helli mínum – sumarmót sagnaþula á laugardaginn

Laugardaginn 19. ágúst næstkomandi verður sumarmót sagnaþula haldið í Rifi og Hellissandi á Snæfellsnesi og er heiti viðburðarins Mannaþefur í helli mínum. Skipuleggjendur eru Félag sagnaþula, Sögustofan í Grundarfirði og Sagnaseiður á Snæfellsnesi. Mannaþefur í helli mínum er dagskrá fyrir alla sem elska að hlusta á góða sögu og þá sem hafa áhuga á að segja sögur eða kannski nýta sögur við að miðla sögu og sagnaarfi á sínu svæði, eða sínum vettvangi.

Mannaþefur í helli mínum - sumarmót sagnaþula á laugardaginn - Skessuhorn