Viðar að ná í gestabókina í sinni 100. ferð á Guðfinnuþúfu. Ljósm. aðsend

Viðar náði markmiðinu og stefnir á 50 ferðir í viðbót

Skagamaðurinn Viðar Bjarnason, sem er 73 ára, var í viðtali í Skessuhorni um miðjan apríl þar sem hann hafði gengið rúmlega 50 ferðir á Guðfinnuþúfu á Akrafjalli. Hann setti sér það markmið að fara 100 ferðir á árinu að minnsta kosti og í byrjun ágúst náði hann því marki, líklegast aðeins á undan áætlun. Hann hefur einnig af og til farið á Háahnúk og Geirmundartind en það er ekki inni í þessari tölu og því eru ferðirnir orðnar vel yfir hundrað. Þá fór Viðar ásamt syni sínum Svavari í göngu á Fimmvörðuháls í júlí og segir hann að það hafi gengið fínt. „Ég var soldið þreyttur í restina, við vorum níu tíma á leiðinni en slóruðum síðustu tvo því við þurftum hvort sem er að bíða eftir rútunni og skoðuðum í staðinn mun meira.“  Ferðin á Fimmvörðuháls hefst í Skógum en lýkur í Básum þar sem áætlunarbifreiðar koma tvisvar til þrisvar á dag að sækja göngugarpa og ferja þá aftur í Skóga.

Viðar náði markmiðinu og stefnir á 50 ferðir í viðbót - Skessuhorn