Lucy Nikishina við vegginn sem hún hefur nú lokið við að skreyta. Ljósm. mm

Úkraínsk listakona skreytti vegg við BARA í Borgarnesi

Síðdegis í gær var lögð lokahönd á og vígt nýtt listaverk sem prýðir stóran götuvegg við veitingastaðinn BARA Ölstofu Lýðveldisins við Brákarbraut 3 í Borgarnesi. Það var úkraínska listakonan Lucy Nikishina sem hefur á liðnum tveimur vikum unnið við að mála vegginn og skreyta hann með blómum sem eiga það sameiginlegt að vaxa bæði í Úkraínu og hér á Íslandi.

Lucy kvaðst í samtali við Skessuhorn hafa verið hér á landi frá því í desember á síðasta ári. Fyrst bjó hún í Grindavík en frá því í júní hefur hún búið í Borgarnesi ásamt dóttur sinni. Lucy er sjálflærð í listsköpun sinni en málaði talsvert í heimabæ sínum áður en Rússar réðust inn í landið. Lucy kemur frá bænum Mahdalynivka sem tilheyrir Dnipropetrovsk héraði í Úkraínu.

„Mig langaði að gefa af mér og þakka Borgnesingum fyrir hlýjar og góðar móttökur,“ sagði Lucy í samtali við blaðamann. Gat hún þess einnig að hún vildi gjarnan taka að sér að mála annan vegg í bæjarfélaginu nú þegar hún hefur lokið við blómum prýdda vegginn á BARA.

Rakel Dögg Sigurgeirsdóttir, sem er einn af eigendum BARA bars, var afar ánægð með skreytinguna hjá þeim og þakklát Lucy fyrir hennar verk. Vonaðist hún til að veggurinn verði Instagram vænn og eigi eftir að laða að sér gesti sem taki þar myndir.

Úkraínsk listakona skreytti vegg við BARA í Borgarnesi - Skessuhorn