
Viktor Jónsson hefur farið á kostum með Skagamönnum í sumar.
Stundum hefur það skilað sér og stundum alls ekki
Knattspyrnumaðurinn og framherjinn Viktor Jónsson hefur verið fremstur meðal jafningja hjá Skagamönnum í Lengjudeildinni í sumar og er markahæstur í deildinni þegar þetta er skrifað með 15 mörk í 16 leikjum. Viktor, sem er fæddur árið 1994, lék sinn fyrsta leik í meistaraflokki 6. júní árið 2011 þegar hann kom inn á sem varamaður í leik Víkings og Fylkis. Síðan þá hefur hann leikið 197 leiki í efstu- og næstefstu deild með liðum Víkings í Reykjavík, Þrótti Reykjavík og ÍA og skorað alls 93 mörk. Blaðamaður Skessuhorns heyrði í Viktori í síðustu viku og tók smá spjall við hann um ferilinn og framtíðarhorfur.