Þórarinn fyrir framan bíl viðskiptavinar úr Reykjavík sem hann hefur þjónustað í áratugi.

Næg verkefni í bílaviðgerðum á Litla-Kambi

Bifvélavirkinn Þórarinn Kári Þórsson og fjölskylda hans fengu nóg af dvölinni í Reykjavík þegar Covid faraldurinn gekk yfir og fóru að leita fyrir sér með húsnæði á landsbyggðinni. „Við skoðuðum hentugt húsnæði allt frá Kjósinni og að Eyjafjöllum en duttum svo fyrir rest niður á þetta húsnæði að Litla-Kambi í Breiðuvík á Snæfellsnesi. Við erum skammt frá Arnarstapa,“ segir Þórarinn og bætir við að hann hafi alltaf átt sér þann draum frá því að hann var ungur maður að búa í sveit. „Ég hafði unnið hjá Bílaleigu Flugleiða í ellefu ár og svo sjálfur rekið verkstæði og vélsmiðju áður en við fluttum hingað vestur.“

Næg verkefni í bílaviðgerðum á Litla-Kambi - Skessuhorn