Við heyskap í Dölum í júlímánuði. Ljósm. úr safni/sm

Sólarmesti júlímánuður frá 1939

Það sem af er sumri hafa miklar öfgar einkennt veðurfar í landshlutanum. Maí var sá úrkomumesti síðan 1969 og júní sá fimmti úrkomusamasti og sjötti sólskinsminnsti frá upphafi mælinga á suðvesturhorninu. En svo kom júlí og þá breyttist allt. Nú liggur fyrir að júlímánuður hafi verið sá úrkomuminnsti í mörg ár og jafnframt sá sólarmesti í 84 ár. Trausti Jónsson veðurfræðingur segir sólarmesta júlímánuð í Reykjavík hafa verið árið 1939 frá því mælingar hófust en þá voru sólarstundirnar 308,4 talsins og er það í eina skiptið sem sólarstundir fóru yfir 300 klukkustundir í júlímánuði frá upphafi mælinga. Sólarstundir júlímánaðar þetta árið töldu þó 306,8 og vantaði því einungis 1,6 stund upp á að metinu væri náð.

Sólarmesti júlímánuður frá 1939 - Skessuhorn