Mjaðjurt í vegskurði við Litlu Fellsöxl. Ljósm. gj

Mjaðjurtin í blóma

Mjaðjurtin er í fullum blóma þessa dagana og gleður augað víða um Vesturland. Þetta er blómplanta af rósaætt sem ber hvít blóm og er gjarnan notuð í ilmefni og sem bragðefni í mjöð sem væntanlega útskýrir nafnið. Mjaðjurt eða Mjaðarjurt hefur verið notuð sem lækningajurt við græðingu sára og sem verkjalyf og var verkjastillandi efni sem varð fyrirmyndin að aspiríni fyrst einangruð úr mjaðjurt. Hún var talin vinna á móti ýmsum bakteríum og koma í veg fyrir sýkingar af þeirra völdum. Hægt er að tína hana og nota í te og samkvæmt heimasíðu Önnu Rósu grasalæknis er hún bólgueyðandi og sýrustillandi og góð við bakflæði, brjóstsviða og háum magasýrum, magabólgum og magasárum. Hún græðir og verndar slímhúð maga og ver gegn gigtarsjúkdómum, kvefi, flensu og blöðrubólgu.

Mjaðjurtin í blóma - Skessuhorn