Gísli á Svalbarðseyri.

Fleiri en íbúar þorpsins sáu Ferðabók Gísla

Gísli Einarsson uppistandari, sjónvarpsmaður og leiðsögumaður gerði sér ferð norður í Eyjafjörð í gær og flutti fyrir troðfullu íþróttahúsi á Svalbarðseyri verk sitt Ferðabók Gísla Einarssonar (en hvorki Eggerts né Bjarna). Um þrjú hundruð manns mættu á sýninguna og þurfti að smala saman stólum úr nærliggjandi húsum svo allir fengju sæti. Gestafjöldinn vekur athygli en á Svalbarðseyri búa um 200 manns og annað eins í sveitinni í kring. Þessi aukasýning á Ferðabókinni var til styrktar Mikael Smára og rann öll innkoman í að létta honum lífið.

Fleiri en íbúar þorpsins sáu Ferðabók Gísla - Skessuhorn