
Bókin Dagar við Dýrafjörð er í senn fallegur prentgripur og sannferðug heimild.
Bókin Dagar við Dýrafjörð komin út
Bjarni Guðmundsson rithöfundur og fræðimaður hefur gefið út bókina Dagar við Dýrafjörð. Bókin er minningabók og kom formlega út 20. júlí síðastliðinn. Þann dag flutti Bjarni minjaspjall og kynningu á bókinni á æskuslóðum sínum í Dýrafirði. Var það gert í Samkomuhúsinu í Haukadal fyrir fullu húsi gesta. Bókin er prýdd teikningum eftir Bjarna sjálfan og er einkar fallegur gripur.