
Frá vettvangi. Ljósm. Landsbjörg
Annir á hálendisvakt björgunarsveitanna í Landmannalaugum
Í gærkvöldi fluttu björgunarsveitir á hálendisvakt Landsbjargar í Landmannalaugum um 20 farþega úr rútu sem fests hafði á vaði ár við Illagil að Fjallabaki. Bilun virðist hafa orðið í rútunni, sem gerði það að verkum að ekki var hægt að koma henni í gang í ánni. Ekki gekk að draga rútuna vélarvana upp úr ánni og því var brugðið á það ráð að selflytja farþega úr henni inn í Landmannalaugar. Var það gert á björgunarsveitarbílum, bíl landvarða og einkabíl. Önnur rúta frá hópferðafyrirtækinu var send í Landmannalaugar til að flytja hópinn áfram á áfangastað sinn sem var á Kirkjubæjarklaustri. Engum varð meint af, segir í tilkynningu frá Landsbjörgu.