
Borgfirðingabók 2023 komin út
Borgfirðingabók 2023 er komin út og um þessar mundir er hún að detta inn um póstlúgu áskrifenda. Sögufélag Borgarfjarðar gefur bókina út og er þetta 24. árgangurinn. Bókin er að þessu sinni 288 blaðsíður og hefur að geyma fjölda þátta, viðtala og greina eftir 28 höfunda. „Efnisval er fjölbreytt enda höfundar afar ólíkir en þeir leggja bókinni til efni án endurgjalds. Ritnefnd vill koma á framfæri þakklæti fyrir þeirra mikla framlag og sérlega ánægjuleg samskipti. Einnig þakkar félagið dyggum áskrifendum sem eru í raun kjölfestan í útgáfu bókarinnar,“ segir í tilkynningu.