Ráðherra skilaði minnisblaði til atvinnuveganefndar

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur skilað minnisblaði til atvinnuveganefndar Alþingis í framhaldi opins fundar hennar með nefndinni sem haldinn var 23. júní sl. Á fundinum gerði ráðherra grein fyrir ákvörðun sinni um tímabundna stöðvun á veiðum langreyða. Ráðherra setti 20. júní sl. bráðabirgðaákvæði við reglugerð um að hvalveiðar hefjist ekki fyrr en 1. september á þessu ári.

Ráðherra skilaði minnisblaði til atvinnuveganefndar - Skessuhorn