Brekkan við þyrlupallinn rúmar ótrúlegan fjölda gesta. Áætlað er að fjöldamet hafi verið slegið að þessu sinni. Ljósm. Skessuhorn/mm

Fjölmennasta samkoman á Vesturlandi í ár – myndir

Einn af hápunktum bæjarhátíðarinnar Írskra daga á Akranesi er brekkusöngur sem fram fór á þyrlupallinum á Jaðarsbökkum í gærkvöldi. Líkt og í fyrra var það Magnús Kjartan Eyjólfsson sem söng og stýrði fjöldasöngnum. Á svæðið mættu jafnt heimafólk og gestir sem síðar um kvöldið héldu margir hverjir í halarófu niður Faxabraut til að mæta á Lopapeysuna á bryggjusvæðinu. Þar var uppselt og þúsundir gesta skemmtu sér fram á nótt.

Fjölmennasta samkoman á Vesturlandi í ár - myndir - Skessuhorn