Skipulagslýsingin nær til alls græna svæðisins meðfram Langasandi, frá Faxabraut og að Sólmundarhöfða. Ljósm. Skessuhorn

Skipulagslýsing vegna Jaðarsbakka – umsagnarfrestur til 6. júlí

Akraneskaupstaður samþykkti 13. júní sl. skipulagslýsingu vegna fyrirhugaðrar breytingar á Aðalskipulagi Akraness 2021-2033 og endurskoðunar deiliskipulags Jaðarsbakka. Skipulagslýsingin var í kjölfarið auglýst og gefst almenningi nú kostur á að senda inn umsögn og leggja þannig fram sín sjónarmið og ábendingar varðandi skipulagningu svæðisins. Umsagnir skulu berast fyrir fimmtudaginn 6. júlí. Í skipulagslýsingunni koma m.a. fram upplýsingar um forsendur, stefnu, helstu viðfangsefni og fyrirhugað skipulagsferli.

Skipulagslýsing vegna Jaðarsbakka – umsagnarfrestur til 6. júlí - Skessuhorn