
Rafhlaupahjól með litíum rafhlöðum skal aldrei hlaða innan húss
Fyrr í þessari viku braust út eldur í einbýlishúsi í Reykjavík og er húsið ónýtt eftir brunann. Mannbjörg varð. Sýnt þykir að ástæður brunans var að kviknað hafði í rafhlöðu hlaupahjóls sem var í hleðslu innan dyra. Bjarni Kr Þorsteinsson varaslökkviliðsstjóri Borgarbyggðar segir að töluvert hafi verið um að kviknað hefur í litíum rafhlöðum sem meðal annars eru orkugjafinn í rafhlaupahjólum barna og fullorðinna. Þá varar hann jafnframt við að tölvur og símar séu hafðir í hleðslu innan um rúmföt og annað sem kemur í veg fyrir eðlilega loftun tækjanna.
„Þessar rafhlöður er einnig að finna í mörgum smærri raftækjum. Þær eiga það til að hreinlega springa og gefa frá sér mikinn eld og reyk sem er baneitraður. Ekki er vitað hvort að rekja megi þessa elda til þess að fiktað hafi verið við rafhlaupahjólin, til þess að auka hraða þeirra, eða hvort að um tæknilega galla er að ræða. Ein kenning hefur verið á lofti um að elda í þessum hjólum megi rekja til þess að rafhlöðurnar hafi orðið fyrir skemmdum þegar farið er upp og niður af gangstéttum, en rafhlaðan er lægsti punktur undir hjólinu og gæti orðið fyrir skemmdum við það að steyta á gangstéttarköntum,“ segir Bjarni.
Hann bendir jafnframt á að fræðandi umfjöllun um þessa hættu sé að finna á heimasíðu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, hms.is og einnig inni á heimasíðu Ólafs Gíslasonar/ Eldvarnamiðstöðvarinnar, oger.is, þar sem fjallað er um sérstök slökkvitæki til þess að fást við elda í litíumrafhlöðum.
„Tilmæli okkar hjá slökkviliði Borgarbyggðar eru eftirfarandi,“ segir Bjarni:
• Ekki undir neinum kringumstæðum séu hjólin hlaðin innandyra í íbúðarhúsum, bílskúrum eða í geymslum fjölbýlishúsa þar sem mikill eldsmatur er í eigum íbúa.
• Hjólin séu hlaðin utandyra og spennubreytir varinn fyrir rigningu.
• Ekki sé verið að fúska við rafbúnað hjólsins með það fyrir augum að auka afl og hraða þess.
• Foreldrar sem og aðrir gefi gaum að því að börn og unglingar hlaði síma sína og tölvubúnað á borði eða úti í glugga þar sem loftar um hann en ekki ofaní rúmfötum, en nokkra elda í húsum má rekja til þess að slíkt hafi verið gert.
• Og þetta klassíska, hugum að reykskynjurum og slökkvitækjum.