Ingibjörg Valdimarsdóttir á aðalfundi Atvinnurekenda AUÐS.

Atvinnurekenda AUÐUR heldur úti mikilvægu starfi fyrir konur sem eiga og reka fyrirtæki

Atvinnurekenda AUÐUR er nýtt nafn á Atvinnurekendadeild Félags kvenna í atvinnulífinu. Nýja nafnið var einróma samþykkt á aðalfundi 23. maí sl. Í félaginu eru 450 konur sem eru atvinnurekendur og eiga eða reka fyrirtæki einar eða með öðrum. Markmið Atvinnurekenda AUÐS er að standa vörð um hagsmuni félagskvenna sem atvinnurekenda, miðla upplýsingum og standa fyrir fræðslufundum sem taka mið af þörfum þeirra og áhugasviði ásamt því að efla tengslanet þeirra. „Áskoranir kvenna í fyrirtækjarekstri eru að mjög mörgu leyti annars eðlis en þær sem mæta launþegum og því er mikilvægt að halda úti sérstöku starfi fyrir þær eins og Atvinnurekenda AUÐUR gerir innan Félags kvenna í atvinnulífinu, FKA,“ segir í tilkynningu frá FKA.

Atvinnurekenda AUÐUR heldur úti mikilvægu starfi fyrir konur sem eiga og reka fyrirtæki - Skessuhorn