
Setning írskra daga á Akratorgi – MYNDSKEIÐ
Klukkan tvö í dag hófst setning írskra daga á Akratorgi og var elstu bekkjum leikskólanna á Akranesi boðið að kíkja á viðburðinn eins og venja er. Líf Lárusdóttir formaður bæjarráðs setti írska daga að þessu sinni og sagði meðal annars frá bræðrunum Þormóði og Katli Bresasonum sem komu hingað árið 880 frá Írlandi og námu hér land. Hrosskell og sonur hans Hallkell voru búnir að koma hér áður en Bresasynir ráku þá í burtu en það er allt önnur saga.
Síðan tóku Sylvía Erla og Árni Beinteinn nokkur lög úr þáttunum Bestu lög barnanna. Þau vöktu mikla lukku fyrir dans og söng og skemmtu krökkunum og öðrum gestum Akratorgs í dágóða stund. Síðan var öllum krökkunum boðið upp á djús og kleinur og síðan röltu börnin af stað til baka á leikskóla bæjarins.
{
"name": "core/embed",
"attributes": {
"caption": "",
"allowResponsive": true,
"responsive": true,
"previewable": true,
"url": "https://youtu.be/teAlZdm6SYI",
"type": "video",
"providerNameSlug": "youtube",
"className": "wp-embed-aspect-16-9 wp-has-aspect-ratio"
},
"saveContent": "<figure class=\"wp-block-embed is-type-video is-provider-youtube wp-block-embed-youtube wp-embed-aspect-16-9 wp-has-aspect-ratio\"><div class=\"wp-block-embed__wrapper\">\nhttps://youtu.be/teAlZdm6SYI\n</div></figure>",
"innerBlocks": []
}


