
Borgarneskirkja bauð í gæludýramessu en hér eru þær Eygló Egilsdóttir, Anna Eiríksdóttir og Heiðrún Helga Bjarnadóttir að messunni lokinni með einn loðinn gest. Ljósm. sþ.
Brákarhátíð fór fram um helgina – MYNDASYRPA
Bæjarhátíðin Brákarhátíð fór fram í Borgarnesi síðastliðna helgi. Ýmislegt var á dagskrá hátíðarinnar í ár m.a. körfuboltamót, tónleikar, bátasiglingar og skipulagðir göngutúrar. Kvenfélag Borgarness hélt dögurð í húsakynnum Björgunarsveitarinnar, Slökkviliðið sýndi bílaflotann við Húsasmiðjuna og Borgarneskirkja bauð í gæludýramessu ásamt fleiri skemmtilegum viðburðum. Líflegt var þess vegna um að litast í Borgarnesi um helgina þó sólin hafi ekki látið sjá sig í þetta skiptið.