Malarvegurinn margrómaði um Skógarströnd.

Halda golfmót á Skógarstrandarvegi vegna aðgerðarleysis

Á Jónsmessu, 24. júní nk. fer fram miðnætur SNAG golfmót á Skógarstrandarvegi (nr. 54-20). Mótið hefst á veginum rétt hjá Valshamri og endar á veginum við Dranga. Það er hópur íbúa í Dalabyggð sem stendur að viðburðinum, með hjálp fjölmargra styrktaraðila, en hugmyndið kveiknaði fyrst á hittingi meðal ferðaþjóna í Dalabyggð. „Þessari hugmynd hefur verið hent fram í gríni áður en nú var kominn tími til að framkvæma,“ segir Jóhanna María Sigmundsdóttir sem aðstoðað hefur við skipulagningu mótsins.

Halda golfmót á Skógarstrandarvegi vegna aðgerðarleysis - Skessuhorn