Benedikt Kristjánsson á hryssunni Hamingju frá Akranesi sem urðu í 1. sæti í 1. flokki.

Þrígangsmót Dreyra

Fjórða og síðasta mótið í götuleikamótaröð hestamannafélagsins Dreyra á Æðarodda var haldið miðvikudaginn 17. maí í ljúfu vorveðri. Keppt var á beinni braut, skeiðbrautinni, þar sem keppendur riðu fjórar ferðir og þurftu að sýna að lágmarki þrjár gangtegundir. Gerður var þó greinarmunur á hægu og hröðu tölti. Frábær skráning var á mótið, rúmlega 40 hross og voru keppendur allt frá fimm og upp í 77 ára. Auk árangurs hlutu keppendur mismunandi mörg stig eftir aldri og reynslu, en mótstjóra var heimilt að veita aukastig fyrir flotta búninga og voru margir keppendur sem nældu sér í aukastig með þeim hætti. Haukur Bjarnason á Skáney var dómari að vanda og þakkar Dreyri honum sérstaklega vel fyrir samstarfið í vetur. Keppt var í fjölmörgum flokkum og fengu efstu þrír knapar verðlaun í sínum flokki.

Götuleikamótaröðin hefur staðið í allan vetur og liðin þrjú; sveita-, efri- og neðri gatan, sem mættu til leiks staðið sig með prýði. Fyrir lokamótið stóð efri gatan efst að stigum. En þegar talningu stiga var lokið, að þrígangsmótinu loknu, hafði neðri gatan skotið sér í efsta sætið og hampar sigri í mótaröðinni og fékk afhentan Götuleikabikarinn til varðveislu í ár. Liðsstjóri neðri götunnar, María Hlín Eggertsdóttir, veitti bikarnum móttöku í félagsheimilinu að móti loknu.  Helstu úrslit:

Polla- og pæjuflokkur
Kristín Alma og Bjarmi frá Skipanesi
Magnús Karl Magnússon og Viðja frá Birkihlíð

Fimmtán ára og yngri
Aldís Emilía Magnúsdóttir og Kóróna frá Birkihlíð

Þriðji flokkur
Nr. 1. Þorbjörg Gunnlaugsdóttir og Finnur frá Feti
Nr. 2. Guðfinna Magnúsdóttir og Elja frá Birkihlíð
Nr. 3. Ása Hólmarsdóttir og Silfurberg frá Eiðisvatni

Annar flokkur
Nr. 1. Bryndís Gylfadóttir og Birting frá Birkihlíð
Nr. 2. María Hlín Eggertsdóttir og Kládíus frá Sauðafelli
Nr. 3. Daniela Roman og Kiljan frá Borgartúni

Fyrsti flokkur
Nr. 1. Benedikt Kristjánsson og Hamingja frá Akranesi
Nr. 2. Ólafur Guðmundsson og Eldur frá Borgarnesi
Nr. 3. Linda Hrönn Reynisdóttir og Tangó frá Reyrhaga.

-fréttatilkynning

Þrígangsmót Dreyra - Skessuhorn