
Frá neðri hluta Borgarbrautar. Ljósm. borgarbyggd.is
Seinkun á götuframkvæmdum í Borgarbyggð
Malbikun á neðri hluta Borgarbrautar í Borgarnesi er lokið. Í síðustu viku var íbúum tilkynnt um stöðu á framkvæmdum á Borgarbrautinni þar sem stóð til að hjáleiðinni um Berugötu yrði lokað 23. eða 24. maí og ný hjáleið færð yfir á Þorsteinsgötu/Skallagrímsgötu. Óhagfellt veðurfar síðustu daga gerði það hins vegar að verkum að malbikun fór fram fáeinum dögum seinna en lagt var upp með í síðustu viku og því seinkar lokun á Berugötunni.