
Opið hús í dag hjá hátt í 100 starfsmönnum í Breið nýsköpunarsetri
Nýsköpunarhátíðin Iceland Innovation Week er haldin árlega á Íslandi í lok maí. Hátíðin hefur farið stækkandi og er í ár von á um 400 erlendum gestum til landsins sem taka þátt í hátíðinni með því að kynna sér íslenska nýsköpun og halda fyrirlestra um hvað sé að gerast í nýsköpun í heiminum. Breið nýsköpunarsetur á Akranesi tekur þátt í hátíðinni í ár með opnu húsi sem er í dag, fimmtudaginn 25. maí, frá kl. 10 til 18. Breið nýsköpunarsetur var opnað fyrir tæpum þremur árum og er þar rekið samvinnurými þar sem í dag eru hátt í 100 manns með aðstöðu.
Valdís Fjölnisdóttir, framkvæmdastjóri Breiðar þróunarfélags, segir að opna húsið sé haldið fyrir alla sem vilji koma og kynna sér það starf sem fram fer á Breið. „Hjá okkur eru fjölbreytt og flott fyrirtæki, rannsóknaraðilar í rannsóknum og þróun, lögfræðingar, endurskoðendur, vísindamenn og máltæknifyrirtæki, svo eitthvað sé sagt. Okkur langar að fólk fái að kynnast því sem er að gerast á Breið því þar er orðið til ansi öflugt samfélag,“ segir Valdís en 17 kynningar eru á dagskrá á fimmtudaginn. „Við hvetjum öll til að mæta, bæði Akurnesinga og fólk annars staðar að. Allur dagurinn er undir svo það er hægt að líta við hvenær sem er.“ Dagskrána má sjá hér að neðan.
