Ellen Alexandra sýnir hér stolt armband sem hún perlaði. Ljósm. tfk.

Lífið er núna – Perlað af krafti í Grundarfirði

Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, mætti til Grundarfjarðar mánudaginn 15. maí þar sem þeim sem vildu bauðst að perla armböndin sem þau eru þekkt fyrir. Frábær mæting var og var góð stemning á meðan fólk perlaði „Lífið er núna“ armbönd af miklum móð. Svo voru grillaðar pylsur fyrir gesti enda þurfti að næra sig eftir allt perlið.

Lífið er núna – Perlað af krafti í Grundarfirði - Skessuhorn