Hópurinn í Hörpu.

Grundaskóli fékk góða heimsókn

Dagana 8.-12. maí fékk Grundaskóli á Akranesi kennara og nemendur frá Finnlandi, Kýpur og Portúgal í heimsókn, allt í allt rúmlega 30 manns. Ástæðan fyrir heimsókninni var sú að árgangur 2008 ásamt núverandi og fyrrverandi kennurum þeirra af miðstigi skólans eru þátttakendur í Erasmus+ verkefninu Climate Change and Biodiversity sem fjallar um hlýnun jarðar og áhrif þess á fjölbreytileika lífríkisins. Verkefnið hlaut styrk áður en Covid-19 skall á og tafðist því um eitt ár vegna ástandsins í heiminum.