Slæm færð var á mánudaginn fyrir bíla á sumardekkjum. Myndin var tekin í Stafholtstungum. Ljósm. Gunnar Ásgeir Gunnarsson.

Víða snjóaði í nótt niður í byggð

Lægð sem fylgir kuldi og úrkoma gengur í dag yfir landið. Til hádegis í dag er gul viðvörun fyrir Breiðafjarðarsvæðið; norðaustan 8-15 m/s og snjókoma eða skafrenningur og lítið skyggni með köflum, einkum á fjallvegum. Þar er vararasamt að vera á ferðinni á vanbúnum ökutækjum, segir í tilkynningu frá Veðurstofunni. En það var víðar en á fjallvegum sem snjóaði í nótt. Í uppsveitum Borgarfjarðar, Dölum og á Snæfellsnesi mætti fólki snjór í morgunsárið. Þar er víða á þjóðvegum á láglendi varasöm færð fyrir bíla á sumardekkjum, eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.

Á vef Vegagerðarinnar má sjá að snjóþekja og éljagangur er á Holtavörðuheiði og víðar í Borgarfirðinum. Hálka er á Fróðárheiði, Svínadal og víðar, en krapi er á Vatnaleið. Vegagerðin hvetur fólk til að aka með gát.

Á Brekku í Norðurárdal var svona umhorfs. Ljósm. Þórhildur Þorsteinsdóttir.

Víða snjóaði í nótt niður í byggð - Skessuhorn