
Skinkuhorn – Haraldur Benediktsson
Haraldur Benediktsson er gestur Skinkuhornsins þessa vikuna. Hann er nýtekinn við starfi bæjarstjóra á Akranesi, eftir tíu ára setu á Alþingi. Haraldur er bóndi á Vestri-Reyni í Hvalfjarðarsveit hvar hann er fæddur og uppalinn, en hann tók við því búi af foreldrum sínum árið 1996 ásamt konu sinni Lilju Guðrúnu Eyþórsdóttur. Saman eiga þau þrjú börn, Benediktu og Eyþór sem komin eru á þrítugsaldur og Guðbjörgu sem er 15 ára og gengur í Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit. Haraldur segist ánægður og spenntur fyrir komandi starfi sínu fyrir Akraneskaupstað, hann hafi verið tilbúinn til að hætta á Alþingi og kom atvinnutilboð þetta því til hans á réttum tíma. Hann slær á þær raddir að ráðning hans í starfið hafi verið taktísk og segir að aldrei í ráðningarferlinu hafi það komið til tals að yrði hann bæjarstjóri myndi hann leiða saman Akranes og Hvalfjarðarsveit með sameiningu sveitarfélaganna. Hann segist þó sjálfur hafa ákveðna sýn á það mál.