
Hjúkrunarheimilið Silfurtún í Búðardal. Ljósm. úr safni
Viðræður ekki hafnar um framtíð Silfurtúns
Tvær vikur eru síðan Dalabyggð sagði upp samningi við Sjúkratryggingar Íslands og heilbrigðisráðuneytið um rekstur hjúkrunarheimilisins Silfurtúns í Búðardal. Engin viðbrögð hafa borist Dalabyggð frá SÍ né heilbrigðisráðuneytinu, önnur en að uppsögnin sé móttekin. Segir Björn Bjarki Þorsteinsson, sveitarstjóri Dalabyggðar, að mörg fordæmi séu fyrir viðlíka aðgerðum hringinn í kringum landið og hafa þar heilbrigðisstofnanir viðkomandi landshluta tekið við rekstri hjúkrunarheimilanna, enda sé rekstur slíkra heimila eitt af hlutverkum ríkisvaldsins. Vonast hann til þess að viðræður fari af stað sem fyrst.