Kleppjárnsreykir í Borgarfirði. Athygli er vakin á að myndin er nokkurra ára gömul og byggður hefur verið nýr leikskóli á skólalóðinni frá því myndin var tekin. Ljósm. úr safni/ Mats Wibe Lund

Skoða kosti þess að Grunnskóli Borgarfjarðar verði færður undir eitt þak

Sveitarstjórn og nefndir Borgarbyggðar hafa á liðnum misserum haft til umfjöllunar framtíð skólastarfs við Grunnskóla Borgarfjarðar (GBF). Engin formleg ákvörðun hefur verið tekin um breytingar en ljóst að opnað hefur verið fyrir þann möguleika að færa allt starf skólans undir eitt þak væntanlegrar skólabyggingar á Kleppjárnsreykjum. Málið er ekki nýtt af nálinni og ýmsum boltum hefur verið kastað upp á liðnum árum þar sem til tals hefur komið fækkun starfsstöðva. Hafa slíkar hugmyndir fram til þess ekki átt upp á pallborðið hjá íbúum og jafnvel dæmi um að slitnað hafi upp úr meirihlutasamstarfi í sveitarstjórn vegna þess, eins og gerðist 2016.

Skoða kosti þess að Grunnskóli Borgarfjarðar verði færður undir eitt þak - Skessuhorn