
Gefendur boltavélarinnar f.v: Bræðurnir Atli Snær og Sigurður Árni sem reka Herrahellinn. Við hlið þeirra eru foreldrar þeirra, þau Júlíus Árni og Helle sem reka Gluggahöllina. Ljósm. gj.
Færðu knattspyrnudeild Skallagríms fótboltavél
Í gær, mánudaginn 1. maí, komu fulltrúar tveggja fyrirtækja í Borgarnesi færandi hendi á fund framkvæmdastjóra knattspyrnudeildar Skallagríms. Færðu þeir deildinni dýrindis fótboltavél sem á eftir að nýtast henni vel. Það eru Gluggahöllin ehf. og Herrahellirinn ehf. sem gefa deildinni gripinn en þau eru bæði staðsett á Sólbakka 11 í Borgarnesi, þar sem Kræsingar ehf. voru síðast til húsa. Gluggahöllin flytur inn glugga og útihurðir og sér um það ferli frá mælingu til ísetningar. Herrahellirinn flytur hins vegar inn snyrtivörur fyrir karlmenn, m.a. sjampó, skeggolíur og pungvax svo eitthvað sé nefnt.