
Ráðhús Borgarbyggðar. Ljósm. gj.
Leggja til breytingar á skipuriti Borgarbyggðar
Byggðarráð Borgarbyggðar hefur fyrir sitt leyti samþykkt breytingar á skipuriti sveitarfélagsins og bíða þær nú samþykkis tveggja funda í sveitarstjórn. Tillagan hefur verið unnin af byggðarráði í samstarfi við sveitarstjóra og sviðsstjóra. Er henni ætlað að auka skilvirkni, flæði og samstarf sviða. Í fundargerð segir að breytingin feli ekki í sér breytingu á fjölda starfa og litla breytingu á verkefnum starfsfólks í ráðhúsinu eða annars staðar hjá sveitarfélaginu. Þá felur tillagan ekki í sér aukinn rekstrarkostnað.