
Axel Örn Ásbergsson og Konfúsíus frá Dallandi fengu 6,88 í einkunn. Ljósm. iss
Uppsteypa og Axel Örn stóðu efst
Á skírdag fór fram keppni í fimmgangi í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum. Það var Axel Örn Ásbergsson sem stóð uppi sem sigurvegari á stóðshestinum Konfúsíusi frá Dallandi með 6,88 i einkunn. Önnur varð Iðunn Svansdóttir á Karen frá Hríshóli með 6,81 í einkunn og þriðji varð Daníel Jónsson og Huginn frá Bergi með 6,76 í einkunn.