
Hljómsveitin Tíbrá frá Akranesi á gullaldarárum sveitarinnar um miðjan níunda áratuginn. Frá vinstri: Flosi Einarsson hljómborðsleikari, Eiríkur Guðmundsson trymbill, Eðvarð Lárusson gítarleikari, Kári Waage söngvari og Jakob R. Garðarsson bassaleikari.
„Við vorum á kafi í Duran Duran og öllum þessum 80´s smellum. Svo mikið að við vorum stundum kallaðir Tíbrá Tíbrá,“ segir Flosi.
Úr safni: Hljómsveitin Tíbrá rifjar upp ferilinn – „Kjarninn í þessu öllu saman var algjört sveitaballahark“
Yfir Páskahátíðina munu birtast gömul viðtöl úr smiðju Skessuhorns sem ekki hafa áður birst á vefnum í heild. Viðtal þetta birtist í jólablaði Skessuhorns, 20. desember 2017. Hér var rætt við meðlimi hljómsveitarinnar Tíbráar sem rifjuðu upp gamla tíma.