
Þekktastur fyrir að tala inn á teiknimyndir en flytur nú Passíusálmana
Leikarinn Jakob Þór Einarsson er einn þeirra sem mun koma fram í Hallgrímskirkju í Reykjavík á föstudaginn langa og lesa þar Passíusálma Hallgríms Péturssonar ásamt fríðu föruneyti kvenna. Rödd Jakobs er vel þekkt íslenskum ungmennum en hann hefur talað inn á ótal teiknimyndir og sjónvarpsefni á sinni ævi. ,,Ég er Skagamaður, barinn og berfættur,“ segir Jakob og hlær. ,,Ég kláraði nám í prentverki um tvítugt og vann þar í um þrjú ár. Áhuginn á leiklistinni kom þegar ég lék í kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar, Óðali feðranna, og reyndi þá að komast inn í Leiklistarskólann, sem tókst og ég kláraði hann. Svo var ég lengi hjá leikhúsinu, forvera Borgarleikhússins, sem var Iðnó hjá Leikfélagi Reykjavíkur eða í um ellefu ár,“ segir Jakob í samtali við Skessuhorn.