Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar í heimsókn á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS). Suðurnesin voru fyrstu viðkomustaður í fundaferð Samfylkingarinnar um heilbrigðismál. Ljósm. aðsend.

Heilbrigðismálin í forgrunni á opnum fundum Samfylkingarinnar

Samfylkingin hefur upp á síðkastið boðað til fjölda opinna funda um heilbrigðismál um land allt. Fundirnir eru opnir öllum og liður í nýju og umfangsmiklu málefnastarfi sem Kristrún Frostadóttir formaður flokksins kynnti á dögunum. Fjórir slíkir fundir um heilbrigðismál verða á Vesturlandi í apríl og fara þeir fram á eftirfarandi stöðum:

Geirabakarí í Borgarnesi — kl. 17:00, mánudag 3. apríl

Samfylkingarsalurinn á Akranesi — kl. 20:00, mánudag 3. apríl

Nesbrauð í Stykkishólmi — kl. 17:00, þriðjudag 11. apríl

Salur Verkalýðsfélags Snæfellinga í Ólafsvík — kl. 20:00, þriðjudag 11. apríl

Kristrún mætir sjálf til leiks á fundunum á Vesturlandi, þrátt fyrir að vera í fæðingarorlofi, til að taka samtalið við heimamenn og fylgja nýju málefnastarfi Samfylkingarinnar af stað. „Heilbrigðismálin og öldrunarþjónustan verða í forgrunni hjá okkur núna og alveg fram á haust. Fyrst förum við af stað með hátt í fjörutíu opnum fundum með fólkinu í landinu. Svo erum við með stýrihóp sem leiðir vinnuna og fundar líka með fólki af gólfinu og öðrum sérfræðingum úr heilbrigðiskerfinu,“ segir Kristrún í samtali við Skessuhorn.

„Ég hélt sjálf fjölda opinna funda um land allt á síðasta ári og þá byrjaði ég einmitt á Vesturlandi og fyrsti fundurinn var í Alþýðuhúsinu í Borgarnesi. Þessir fundir höfðu mikil áhrif á mig. Svona viljum við gera þetta og við tökum vinnuna alvarlega; nú undirbúum við breytingar á sviði heilbrigðismála og það er ekki vanþörf á.“

Vinnan leidd af Vestlendingi

Á hverjum fundi verða fulltrúar úr stýrihópi Samfylkingarinnar um heilbrigðis- og öldrunarþjónustu auk forystufólks flokksins á Alþingi og í sveitarstjórnum. Formaður í stýrihópnum er Anna Sigrún Baldursdóttir en hún er fædd og uppalin í Stykkshólmi og ættuð af Snæfellsnesi.

Anna Sigrún er hjúkrunarfræðingur að mennt og leiðir nú öldrunarþjónustu hjá Reykjavíkurborg. Hún vann áður meðal annars sem framkvæmdastjóri á Landspítala og aðstoðarmaður Guðbjarts heitins Hannessonar velferðarráðherra sem var lengi forystumaður í bæjarmálum á Akranesi og oddviti Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi.

Öllum velkomið að taka þátt

Kristrún leggur áherslu á að öllum sé velkomið að mæta á fundina og taka þátt. Ekki verði spurt um flokksskírteini fólks. „Nú erum við að opna flokkinn og leggjum áherslu á að taka samtal við fólkið í landinu. Ég bind miklar vonir við þessa vinnu,“ segir Kristrún og bætir að lokum við: „Ert þú með sérþekkingu í heilbrigðismálum eða reynslu af gólfinu? Eða ertu almennur borgari sem vill sjá breytingar til hins betra í heilbrigðismálum á Íslandi? Þá viljum við fá þig með í samtalið.“

Heilbrigðismálin í forgrunni á opnum fundum Samfylkingarinnar - Skessuhorn