Matthías Stefánsson með stærsta sjóbirtinginn sem veiddist í Leirá á opnunardaginn, 89 sentimetra fisk. Ljósm. ss

Fyrsti dagurinn var frábær í Leirá

Fyrsti apríl er dagurinn sem sjóbirtingsveiðin byrjar á nokkrum stöðum á landinu, svo sem í Leirá, Grímsá og Skugga, ef aðstæður leyfa. Aðstæður voru fínar í Leirá og veiðin var ágæt fyrsta daginn. Næstu dagar gætu gefið vel af fiski, en hann er greinilega mættur um alla á.

Fyrsti dagurinn var frábær í Leirá - Skessuhorn