Bæjarstjóri tók þátt í gríninu og mundar hér kampavínsflöskuna.

Ekki allskostar sannleikanum samkvæmt

Landsmenn gátu víða í fjölmiðlum séð óvenjulegar fréttir í gær, laugardaginn 1. apríl. Fréttir sem áttu ekki endilega við rök að styðjast því þennan eina dag ársins má segja pínulítið ósatt í þeim tilgangi að freista þess að láta menn hlaupa. Í gærmorgun voru þrjár slíkar fréttir hér á síðunni okkar. Ljótu hálfvitarnir héldu ekki útgáfutónleika í Akranesvita, Aldan í Borgarnesi greiddi ekki helmingi hærra skilagjald fyrir drykkjarumbúðir í gær og loks hefur bæjarstjórnin á Akranesi ekki ákveðið að gefa götum ný nöfn. Tengigata framan við skrifstofu Skessuhorns, sem bæjarstjóri gaf nafn, mun þó áfram verða merkt sem Skessuhornsbraut, í það minnsta þar til hún fær annað nafn.

Ekki allskostar sannleikanum samkvæmt - Skessuhorn