Alexandra ásamt organista Stykkishólmskirkju Lázló Petö. Kirkjukórinn í baksýn eftir lokaatriði hátíðarinnar þar sem fluttar voru aríur úr óperum eftir Alexöndru. Ljósm. SÁ

Afar vel heppnuð Júlíana í Stykkishólmi – MYNDASYRPA

Júlíana, hátíð sögu og bóka, var haldin í tíunda skipti í Stykkishólmi um helgina og var yfirskrift hátíðarinnar að þessu sinni „Nýir Íslendingar: Áhrif þeirra í skrifum og listum.“ Að sögn Grétu Sig Bjargardóttur, eins skipuleggjanda hátíðarinnar, var hátíðin alveg einstaklega vel heppnuð í alla staði, var vel sótt og allir viðburðir gengu eins og í sögu. „Það var kalt í göngunni sem Anna Melsteð leiddi en alls komu um 40 manns í gönguna og endaði hún á Hótel Egilsen þar sem smakkaður var hinn fullkomni biti. Þar var settur saman harðfiskur frá Stykkishólmi, smjör og söl eða þang sem rann ljúflega ofan í fólkið. Í gamla daga í Helgafellssveit var framleidd mjólk á hverju einasta búi en nú var síðasta búið í sveitinni að hætta framleiðslu á mjólk. Anna kom með síðustu mjólkurdropana úr síðustu kúnni á Hraunhálsi til að leyfa fólki að smakka ógerilsneydda mjólk og það var upplifun að drekka með.“

Afar vel heppnuð Júlíana í Stykkishólmi - MYNDASYRPA - Skessuhorn