
Galli í dönskum gluggum orsakar leka í fjölbýlishúsi
Í fréttaskýringaþættinum Kastljósi á RÚV og í Skessuhorn var í byrjun febrúar sagt frá því að íbúar í fjölbýlishúsinu Borgarbraut 57 í Borgarnesi stæðu í málaferlum við húsbyggjanda vegna leka í og við glugga í húsinu. Í frétt Skessuhorns var rætt við Guðmund Eyþórsson formann húsfélagsins og haft eftir honum að skipta þurfi um alla glugga í húsinu, lagfæra klæðningu umhverfis þá og sömuleiðis gera við lekan þakdúk. Nú þykir hins vegar sýnt að lekavandamál áveðurs í húsinu eru vegna glugganna sjálfra en ekki klæðningar umhverfis þá. Dráttur hefur hins vegar orðið á viðgerðum þar sem Húsasmiðjan, söluaðili glugganna, vísar ábyrgðinni yfir á dönsku framleiðendur glugganna. Aðrir gallar svo sem á þakdúk og vegna gallaðs gólfefnis, eru minniháttar og hefur verið brugðist við þeim af hálfu húsbyggjanda.