Varar við akstri í Surtshelli

Snorri Jóhannesson veiðivörður á Arnarvatnsheiði birti meðfylgjandi mynd á FB síðu sinni í gær. Hún er af veginum sem liggur niður sneiðina á akstursleiðinni frá Kalmanstungu og í Hallmundarhraun þar sem fjölmargir leggja leið sína til að skoða Surtshelli. Sneiðin liggur utan í felli og af henni er snarbratt niður í Norðlingafljót. Aflíðandi klakabunkar ná út af vegbrúninni. Snorri bendir á að þarna sé mjög varhugavert að aka við þessar aðstæður jafnvel þótt fólk sé vant akstri og á vel búnum bílum á nagladekkjum. Á vegamótunum er slá þar sem vegurinn er sagður ófær, en handan slárinnar er upplýsingaskilti sem margir ferðamenn fara að og freistast í kjölfarið til að halda för sinni áfram. Snorri hvetur Vegagerðina til að loka veginum með keðju meðan aðstæður eru með þessu móti.

Varar við akstri í Surtshelli - Skessuhorn