Svipmynd af foreldrafundinum í gær. Ljósm. sþ.

Foreldrafélag Laugargerðisskóla vill stofna einkahlutafélag og kaupa skólahúsnæðið

Fundur með foreldrum barna sem stunda nám í Laugargerðisskóla í Eyja- og Miklaholtshreppi fór fram í gær, fimmtudag. Þar kynnti stjórn foreldrafélagsins hugmyndir sínar sem miða að því að koma í veg fyrir að skólanum verði lokað. Skessuhorn greindi frá því í lok síðasta mánaðar að 20. febrúar síðastliðinn hefði sveitarstjórn tekið ákvörðun um að loka skólanum eftir yfirstandandi skólaár, næðust samningar við annað sveitarfélag um skólaþjónustu. Íbúar í Eyja- og Miklaholtshreppi voru 1. mars síðastliðinn 117 og því er sveitarfélagið eitt af þeim fámennari á landinu sem enn reka grunnskóla.

Foreldrafélag Laugargerðisskóla vill stofna einkahlutafélag og kaupa skólahúsnæðið - Skessuhorn