Yfirlýsing frá foreldrum við Laugargerðisskóla

Skessuhorn fékk senda yfirlýsingu frá foreldrum barna við Laugargerðisskóla í Eyja- og Miklaholtshreppi. Þar er skorað á sveitarstjórn að ræða hugmyndir sem foreldrar hafa. Yfirlýsingin er svohljóðandi:

„Alveg frá því tölvupóstur kom frá oddvita Eyja- og Miklaholtshrepps 21. febrúar þess efnis að loka ætti Laugargerðisskóla höfum við foreldrar verið að biðja sveitarstjórn um samtal til að leita lausna á stöðunni eins og hún er núna með það að markmiði að styrkja okkar litla samfélag.

Að beiðni foreldra komu sveitarstjórnarmenn til fundar við okkur mánudagskvöldið 13. mars og var ánægjulegt fyrir okkur foreldra að geta kynnt þær tillögur sem við erum með til lausna fyrir sveitarstjórnarmönnum.

Þær eru:

Nr. 1.   Foreldrar stæðu fyrir stofnun einkahlutafélags sem myndi kaupa eignirnar af sveitarfélaginu og það félag myndi reka staðinn, halda honum við og standa fyrir uppbyggingu með það að markmiði að ungt fólk myndi sjá sér hag í því að flytja á svæðið. Sveitarfélagið myndi leigja rými til að vera með skóla og gæti þá einbeitt sér að því.

Nr. 2.   Fórum við einnig yfir þá hugmynd að félagið væri einnig tilbúið til að reka opinn grunnskóla í Laugargerði með samningi við sveitarfélagið. Þessi aðferð er í nokkrum skólum hér á landi og t.d. þekkt í Danmörku.

Báðum við sveitarstjórn um að hitta fulltrúa okkar eins fljótt og kostur væri til að við gætum farið betur yfir þessar tillögur þannig að búið væri að eiga nokkur samtöl á milli aðila sem hægt væri þá að fara yfir á fyrirhuguðum íbúafundi í okkar samfélagi 28. mars næstkomandi. Vonumst við eftir því að sveitarstjórn setjist niður með okkur sem allra fyrst til að fara yfir þessi mál.

Við höfum mikla trú á að þetta frábæra svæði geti laðað að sér starfsemi sem og íbúa og ef af verður hlökkum við til að takast á við þetta verkefni sem að okkar mati myndi hafa alla möguleika á að styrkja okkar samfélag.

Til að fara betur yfir þær hugmyndir sem við erum með viljum við halda opinn fund fimmtudaginn 23. mars kl 15.00 í Laugargerðisskóla. Allir sem áhuga hafa á að kynna sér þær hugmyndir sem við erum með eru velkomnir. Hlökkum til að fara yfir hugmyndirnar með ykkur.“

Yfirlýsing frá foreldrum við Laugargerðisskóla - Skessuhorn