
Þessi skemmtilega fjölskyldumynd var tekin að afloknum úrslitaleik Skallagríms og KR fyrir þremur árum þegar bikarinn fór í Borgarnes eftir æsispennandi viðureign. F.v. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, Ragnheiður Guðmundsdóttir, Ámundi Sigurðsson, Arna Hrönn Ámundadóttir og Guðrún Ósk Ámundadóttir. Ljósm. þe.
Sigrún Sjöfn leikjahæst í efstu deild körfunnar
Á dögunum varð körfuknattleikskonan knáa úr Borgarnesi, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, leikjahæst í efstu deild kvenna í körfubolta frá upphafi. Hún á nú að baki tæpa 380 leiki og er enn á fullu, spilar í dag með Haukum. Sigrún Sjöfn á að baki langan og sigursælan feril með Skallagrími, KR, Hamri, Grindavík og Fjölni. Auk þess lék hún um tíma með Olympique Sannois í Frakklandi og Norrköping Dolphins í Svíþjóð. Á árunum 2007-2021 lék Sigrún Sjöfn enn fremur 57 landsleiki fyrir Íslands hönd. Þegar litið er til helstu tölfræðiþátta körfuboltans í efstu deild er hún jafnframt alls staðar í efstu sætum, þ.e. í þriggja stiga skotum, stoðsendingum, stolnum boltum og fráköstum sem segir allt um hversu öflugur leikmaður hún er - og er enn að.