
Max Bochra fagnar hér Luis Romero eftir fjórða markið. Ljósm. tfk
Víkingur Ólafsvík vann Vesturlandsslaginn
Víkingur Ólafsvík og Kári áttust við í riðli 1 í B deild í Lengjubikar karla í gærkvöldi og var viðureignin á Ólafsvíkurvelli í kulda og miklu frosti. Víkingur komst yfir á 27. mínútu með marki frá Mikael Hrafni Helgasyni og skömmu fyrir hálfleik bætti Ísak Máni Guðjónsson við öðru marki, staðan 2-0 fyrir Víkingi.