Guðbrandur Gunnar Garðarsson og Miroslav Honek, veitingamenn á Bjargarsteini, með bréfið góða. Ljósm. tfk.

Óhefðbundinn póstur skilar sér á leiðarenda

Síðastliðið sumar kom hress ferðamaður frá Kanada og snæddi kvöldverð á veitingastaðnum Bjargarsteini í Grundarfirði. Hann var búinn að ferðast víða um Ísland og þar á meðal á Vesturlandi og var mjög hrifinn af landi og þjóð. William Jans heitir maðurinn og er fyrirlesari í heimalandi sínu en á næstu vikum verður hann með sýningar í Kanada þar sem hann segir frá Íslandsför sinni í máli og myndum.

Óhefðbundinn póstur skilar sér á leiðarenda - Skessuhorn