ÍA með góðan sigur á Hrunamönnum

ÍA og Hrunamenn mættust í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og var leikurinn á Akranesi. Fyrir leik voru Skagamenn með 16 stig í níunda sætinu en Hrunamenn sæti ofar með 18 stig og gat ÍA því með sigri jafnað þá að stigum í deildinni. Leikurinn byrjaði fjörlega og var nánast jafnt allan tímann, staðan var 15:16 gestunum í vil eftir rúmar sex mínútur og þeir höfðu þriggja stiga forskot þegar flautaður var af fyrsti leikhluti, 22:25. Sama var uppi á teningnum í öðrum leikhluta og lítið bar á milli liðanna. Staðan var jöfn eftir fimm mínútna leik, 34:34, og þegar flautað var til hálfleiks var staðan 45:47 fyrir Hrunamönnum frá Flúðum.

ÍA með góðan sigur á Hrunamönnum - Skessuhorn