Í leikskólanum á Akraseli. Ljósm. vaks

Viðmiðunaraldur yngstu leikskólabarna færður frá júlí til júní í haust

Á fundi skóla- og frístundaráðs Akraneskaupstaðar síðasta miðvikudag var tekið fyrir innritun í leikskóla á Akranesi fyrir starfsárið 2023-2024. Þar kom fram að með vísan í reglur um innritun í leikskóla á Akranesi hafi skóla- og frístundaráð ákveðið að viðmiðunaraldur yngstu barna við innritun í leikskóla haust 2023 verði 14 mánuðir. Foreldrar barna fædd út júnímánuð 2022 og eldri geta sótt um fyrir börn sín og verður þeim úthlutað leikskólaplássi fyrir næsta skólaár.

Viðmiðunaraldur yngstu leikskólabarna færður frá júlí til júní í haust - Skessuhorn