
Hótel Varmaland vill tvöfalda herbergjafjöldann
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti í gær beiðni Hótels Varmalands ehf. um að hefja vinnu við að nauðsynlegar breytingar á aðal- og deiliskipulagi á Varmalandi til að hefja undirbúning að stækkun hótelsins um 60 herbergi. Áform eigenda eru þau að stækka hótelið til suðausturs inn á lóðir við nærliggjandi skipulagt íbúðahverfi, við götu sem heitir Birkihlíð. Til að rúma stækkun hótelsins þarf að fella úr gildi skipulag fyrir íbúðalóðirnar Birkihlíð 2 og 4 þar sem í dag er gert ráð fyrir tveimur parhúsum. Lóð hótelsins þarf að stækka um 2.093 fermetra til austurs til að rúma fyrirhugaða nýbyggingu. Gert er ráð fyrir að byggð verði tengibygging milli núverandi hótelbyggingar við nýja þriggja hæða viðbyggingu. Á hverri hæð viðbyggingarinnar er gert ráð fyrir allt að 20 herbergjum og/eða fundarherbergjum, þannig að heildar stækkun hótelsins verður um 60 herbergi sem er tvöföldun á núverandi herbergjafjölda.