Aðalsteinn Kristjánsson kastar hér kúlu á Landsmóti 50+ í Borgarnesi. Ljósm. umfi.is

Landsmót UMFÍ 50+ verður í Stykkishólmi um Jónsmessuna

Landsmóts UMFÍ 50+ verður í sumar haldið í Stykkishólmi en mótið var eins og kunnugt er haldið í Borgarnesi síðastliðið sumar. Mótið er haldið á hverju ári, fyrir utan Covid árin tvö, og stefnt að þátttöku sem flestra sem náð hafa miðjum aldri. Það verður haldið um Jónsmessuna dagana 23. – 25. júní og fer fram samhliða bæjarhátíðinni Dönskum dögum, sem er ein elsta bæjarhátíð landsins. Því má búast við fjölmenni í Stykkishólmi þessa helgi. Landsmótið er haldið í samstarfi UMFÍ og Héraðssambands Snæfellsness og Hnappadalssýslu (HSH) og Sveitarfélagsins Stykkishólms.

Landsmót UMFÍ 50+ verður í Stykkishólmi um Jónsmessuna - Skessuhorn