Húsið við Stillholt 23. Ljósm. vaks

Hugmyndum um 16 hæða hús hafnað

Á fundi skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar síðasta mánudag var tekin fyrir umsókn Krark arkitekta fyrir hönd NH-2 þar sem sótt var um að breyta skipulagi á Dalbrautarreit á Akranesi. Í breytingunni felst að sameina lóðirnar, rífa núverandi húsnæði á Stillholti 23 og á Dalbraut 2 og að byggt verði 16 hæða hús með 70 íbúðum auk verslunar- og þjónustu á jarðhæð. Í umsókninni kemur einnig fram að gert sé ráð fyrir niðurgrafinni tveggja til þriggja hæða bílageymslu með allt að 105 stæðum í kjallara.

Hugmyndum um 16 hæða hús hafnað - Skessuhorn