
Svandís Svavarsdóttir í ræðustól, en fundarstjóri var Guðbrandur Brynjúlfsson á Brúarlandi.
Bændur áttu gagnlegan fund með matvælaráðherra
Búnaðarfélag Mýramanna hélt aðalfund sinn í Lyngbrekku í gærkvöldi. Aðalfundarstörf hófust klukkan 22 en fyrr um kvöldið var á dagskrá fundur með Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra. Var bændum víðar af Vesturlandi boðið að mæta. Ráðherra hélt í upphafi stutt innlegg um helstu verkefni ráðuneytis hennar en síðan var opnað fyrir fyrirspurnir úr sal og voru margir sem kváðu sér hljóðs og nýttu tækifærið að spyrja ráðherra út í ýmis mál. Um fimmtíu manns mættu og þáðu glæsilegar veitingar hjá bændum sem lagt höfðu sig í líma við baksturinn.